Jarðvegsskrúfur eru framtíðin og tryggja að náttúran fær að njóta vafans
Við erum viðurkenndur sölu og þjónustuaðili fyrir Stop Digging (SE) jarðvegsskrúfur.
Að nota jarðvegsskrúfur er bæði fljótlegri, ódýrari og umhverfisvænari leið í sökkulgerð. Stop Digging framleiðir skrúfurnar sínar sjálf og hefur þróað nákvæmar leiðir í uppsetningu sem tryggja bestu mögulegu útkomu. Starsfólk okkar hefur hlotið þjálfun hjá Stop Digging í Svíþjóð.
Við bjóðum upp á fjöldann allan af mismunandi skrúfum og viðhengjum en einnig er hægt að sér smíða viðhengi fyrir sérstök verkefni. Sjá nánar á heimasíðu Stop Digging.
Hægt er að nota skrúfurnar fyrir palla, girðingar, ruslatunnuhús, trampolín, garðhús, sumarhús og einbýlishús svo eitthvað sé nefnt.
Erfitt er að gefa verðdæmi þar sem meta þarf hvert verk fyrir sig út frá aðstæðum og velja mismunandi skrúfur út frá því. Vinsælustu skrúfurnar okkar eru á verðbilinu 15.000- 19.000 krónur með vinnu.
Þumalputtareglan er 1 skrúfa pr 2 m2 og mikilvægt er að skrúfan nái niður fyrir frost í jörðu.
Hafðu samband og við gerum tilboð í verkið þitt.